Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Salix apoda
Ættkvísl   Salix
     
Nafn   apoda
     
Höfundur   Trautv.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kákasusvíðir
     
Ætt   Víðiætt (Salicaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Kvenreklar gráir, karlreklar appelsínugulir eða bleikir.
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   15-30 sm stundum hærri.
     
Vaxtarhraði   Hægvaxta.
     
 
Vaxtarlag   Líkur sólvíði (S. hastata).
     
Lýsing   Laufin eru meira öfugegglaga, skærgræn ofan, laufleggir allt að 5 mm löng. Axlablöð stundum nýrlaga.&
     
Heimkynni   N M-Evrópa, Kákasus.
     
Jarðvegur   Sírakur, meðalvökvun, ekki ofvökva.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z6
     
Heimildir   = 1, plantlust.com/plants/Salix-apoda, davesgarden.com/guides/pf/go/162931/#b
     
Fjölgun   Sumar- og vetrargræðlingar. Plantið með 90-120 sm millibili.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í steinhæðir, sem þekjurunni.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru tvær plöntur undir þessu nafni, ein karlplanta frá 1998 og önnur planta 1993, hvorug kelur.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is