Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Carex nigra ssp. juncella
Ættkvísl   Carex
     
Nafn   nigra
     
Höfundur   (L.) Reichard
     
Ssp./var   ssp. juncella
     
Höfundur undirteg.   (Fries) Lemke
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Þúfustör
     
Ætt   Cyperaceae (Stararætt)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær grasleitur einkímblöðungur
     
Kjörlendi  
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími   Júní-júlí
     
Hæð   0.20 - 0.50 m
     
 
Þúfustör
Vaxtarlag   Ólík aðaltegund að því leyti að hún er þýfð og án skriðulla jarðstöngla og á löngum stoðblöðum.
     
Lýsing  
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   9, http://linnaeus.nrm.se/flora/mono/cypera/carex/carenig.html
     
Nytjar  
     
     
Útbreiðsla   Nokkuð algeng en útbreiðsla óviss.
     
Þúfustör
Þúfustör
Þúfustör
Þúfustör
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is