Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Lycopodium clavatum
Ættkvísl   Lycopodium
     
Nafn   clavatum
     
Höfundur   Linnaeus, Sp. Pl., 1101. 1753.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Burstajafni
     
Ætt   Lycopodiaceae (Jafnaætt)
     
Samheiti   Lepidotis clavata (L.) P. Beauv.
     
Lífsform   Fjölær jafni (gróplanta)
     
Kjörlendi   Vex innan um lyng.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími   Gróbær í ág.-sept.
     
Hæð   0.06-0.10 m
     
 
Burstajafni
Vaxtarlag   Langur, jarðlægur stönglar með mörgum uppsveigðum eða uppbeygðum greinum. Jarðlægu stönglarnir eru 50-80 sm á lengd, en greinarnar 6-10 sm á hæð.
     
Lýsing   Blöðin skarpydd, með langri, hvítri hárburst, einhliða uppsveigð á aðalstönglinum, en ýmist útstæð eða aðfelld á greinunum. Gróöxin gulgræn með löngum stilk, oftast tvö saman. Sjaldan gróbær og þá í ágúst-september. 2n = 68 Lík/líkar: Hann líkist fljótt á litið lyngjafna, en þekkist á hároddi (burst) á enda blaðanna og á tveim gróöxum saman á enda grannra, uppréttra greina.
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   2,9, HKr
     
Nytjar  
     
     
Útbreiðsla   Mjög sjaldgæf jafnategund, aðeins fundin á einum stað í landinu, en hann vex innan um lyng á Ormsstaðafjalli í Breiðdal, Austurlandi. Friðuð. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa, N og S Ameríka, Asía, Afríka
     
Burstajafni
Burstajafni
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is