Páll Ólafsson, Ljóðið Vetrarkveðja
Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.

Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
Sagina caespitosa
Ættkvísl   Sagina
     
Nafn   caespitosa
     
Höfundur   (J. Vahl) Lange, in Rink, Grnl. Geogr. Stat. Beskr. 2(6): 133 (1857)
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallkrækill
     
Ætt   Caryophyllaceae (Hjartagrasaætt)
     
Samheiti   Sagina nivalis var. caespitosa (J. Vahl) Boivin
     
Lífsform   Fjölær jurt
     
Kjörlendi   Vex uppi á fjallsbrúnum eða bungutoppum, einkum þar sem deigur jarðvegur er.
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst
     
Hæð   0.01-0.05 m
     
 
Vaxtarlag   Sjaldgæf, smávaxin krækilstegund sem myndar litlar, grágrænar, þéttar þúfur með visnum blöðum neðantil. Stönglar örstuttir með einu blómi.
     
Lýsing   Blöðin örsmá, gagnstæð, striklaga, stinn. Blómin hvít, fimmdeild blóm á stuttum, uppréttum blómleggjum. Krónublöðin lítið eitt lengri en bikarblöðin. 10 fræflar. Blómgast í júlí-ágúst. 2n = 84. LÍK/LÍKAR: Líkist helst snækrækli en myndar örsmáar þúfur.
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   2,3,9, HKr
     
Nytjar  
     
     
Útbreiðsla   Sjaldgæfur, mest á Norðausturlandi54, en finnst þó í flestum landshlutum. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Kanada, Grænland, Mexíkó, Noregur, Svíþjóð og N Ameríka.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is