Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Sagina subulata
Ættkvísl   Sagina
     
Nafn   subulata
     
Höfundur   (Swartz) C. Presl., Fl. Sicula: 158. 1826.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Broddkrækill
     
Ætt   Caryophyllaceae (Hjartagrasaætt)
     
Samheiti   Spergella subulata (Swartz) Reichenb. Spergula subulata Swartz Spergularia nobreana Samp.
     
Lífsform   Fjölær jurt
     
Kjörlendi   Rakur jarðvegur
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Júní-júlí
     
Hæð   0.02-0.06 m
     
 
Broddkrækill
Vaxtarlag   Myndar litlar, ljósgrænar þúfur. Stöglar upprétir, þétt kirtilhærðir með einu endastæðu blómi, 2-6 sm á hæð.
     
Lýsing   Blöðn með löngum broddi sem er oft lengri en þvermál blaðsins sjálfs. Krónublöðin jafnlöng bikarblöðum. Blómgast í júní. 2n=22. LÍK/Líkar: Broddkrækill (Sagina subulata) líkist langkrækli, en þekkist á því að blöðin enda í mun lengri broddi (-1/2 mm), auk þess sem hann er meira eða minna kirtilhærður.
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   2,3,9, HKr
     
Nytjar  
     
     
Útbreiðsla   Víða við sjó á Vesturlandi og Vestfjörðum, einnig á Austfjörðum frá Vopnafirði suður í Lón. Ófundinn annars staðar. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Ástralía, Kanada, Færeyjar, Kína, Kosta Ríka, Evrópa, Indland, N Ameríka.
     
Broddkrækill
Broddkrækill
Broddkrækill
Broddkrækill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is