Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Triglochin maritima
Ættkvísl   Triglochin
     
Nafn   maritima
     
Höfundur   Linnaeus, Sp. Pl. 339 (1753)
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Strandsauðlaukur
     
Ætt   Juncaginaceae (Sauðlauksætt)
     
Samheiti   Triglochin ani Koch; Triglochin roegneri C. Koch; Triglochin transcaucasica Bordzil.;
     
Lífsform   Fjölær grasleit jurt
     
Kjörlendi   Vex á sjávarflæðum og sendnum engjum nærri sjó.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími   Júní
     
Hæð   0.15-0.40 m
     
 
Strandsauðlaukur
Vaxtarlag   Jarðstönglar skástæðir og fjölblöðóttir. Stönglar sterklegir, 2-2,5 mm í þvermál, 15-40 sm á hæð.
     
Lýsing   Blöðin grænleit, sterkleg, striklaga eða nær sívöl, með sama sérkennilega bragðinu og mýrasauðlaukur. Blómin smá, stuttstilkuð í löngum, allþéttum, blómríkum, axlaga klasa á stöngulendum. Blómin 6-deild, blómhlífin í tveim þríblaða krönsum, blómhlífarblöðin fjólubláleit til jaðranna með grænleitum miðstreng, snubbótt. Fræflar sex, nær stilklausir og standa þétt innan við blómhlífarblöðin. Frævan gerð úr sex fræblöðum. Aldin þrídeild klofaldin, egglaga og gildust neðst, um 2,5 mm í þvermál. Blómgast í júní. LÍK/LÍKAR: Mýrasauðlaukur. Mýrasauðlaukur er mun fíngerðari jurt með aflengri aldin og aðlæga aldinleggi.
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   1,2,3,9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=5&taxon_id=222000441; http://www.pfaf.org/database/plants.php?Triglochin+maritima
     
Reynsla  
     
     
Útbreiðsla   Hér og hvar á sjávarflæðum umhverfis landið, þó sjaldséður við suðurströndina austan Ölfusár og á Norðausturlandi frá Skjálfanda að Þistilfirði, og á Norðurlandi vestra frá Fljótum vestur á Strandir. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa, Asía, N Afríka, N Ameríka.
     
Strandsauðlaukur
Strandsauðlaukur
Strandsauðlaukur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is