Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Scilla mischtschenkoana
Ættkvísl   Scilla
     
Nafn   mischtschenkoana
     
Höfundur   Gross.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Heiðstjörnulilja
     
Ætt   Liliaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   laukur (8)
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   postulínsblá/m. hvítu, dekkri rendur
     
Blómgunartími   maí
     
Hæð   0.10-0.15c
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   blómgast um leið og stöng. koma upp úr mold að vori
     
Lýsing   líkist postulínslilju en hefur engan kraga utan um frævlana
     
Heimkynni   Íran, Kákasus
     
Jarðvegur   léttur frjór moldarjarðvegur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   hliðarlaukar, sáning, laukar lagðir í sept. á 8-10cm dýpi
     
Notkun   steinhæðir, blómaengi, undirgróður, grasflatir
     
Nytjar   Harðger, ljómandi falleg tegund (H.Sig)
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is