Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Spiraea longigemmis
Ættkvísl   Spiraea
     
Nafn   longigemmis
     
Höfundur   Maxim.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Töfrakvistur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sumargrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Sumar.
     
Hæð   - 1,5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Töfrakvistur
Vaxtarlag   Uppréttur runni með fínhærðar, dökkbrúnar, sívalar, fín-langrákóttar greinar.
     
Lýsing   Sumargrænn runni allt að 1,5 m hár. Greinarnar eru uppsveigðar til útstæðar, kantaðar, hárlausar. Brumin eru löng og flöt. Laufin allt að 3-7.5 × 1,25-3 sm, egglaga-lensulaga til aflöng, ydd og grunnur þeirra fleyglaga. Þau eru ljósgræn og hárlaus ofan, tennur með kirtilodda, bláleit og dúnhærð á æðastrengjum á neðraborði þegar þau eru ung. Laufleggir allt að 6,5 sm langir. Blómin allt að 6,5 mm í þvermál, hvít, í breiðum, hvelfum, lotnum, dúnhærðum skúfum, sem minna á hálfsveip og eru allt að 5×9 sm. Krónublöðin eru styttri en fræflarnir. Hýðin eru næstum hárlaus með útstæðum restum af stílum. ε
     
Heimkynni   V Kína
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun  
     
Notkun  
     
Nytjar   Ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Töfrakvistur
Töfrakvistur
Töfrakvistur
Töfrakvistur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is