Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Syringa × prestoniae ‘James MacFarlane’
Ættkvísl   Syringa
     
Nafn   × prestoniae
     
Höfundur   McKelv.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘James MacFarlane’
     
Höf.   Yeager 1959, USA
     
Íslenskt nafn   Fagursýrena
     
Ætt   Smjörviðarætt (Oleaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sumargrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Bleikur-djúpbleikur,
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   2,4-3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Stórvaxinn, uppréttur runni.
     
Lýsing   Glæsilegur, uppréttur, sumargrænn runni, 2,4-3 m hár og 1,8-3,6 m breiður laufin milligræn, slétt, glansandi, með áberandi æðastrengi, blómviljugur. Hægt að nota sem lítið tré. Blómin bleik-djúpbleik, ilmandi, í stórum klösum. Börkurinn sléttur. &
     
Heimkynni   Garðauppruni (S. komarowii ssp. reflexa × S. villosa).
     
Jarðvegur   Mjög rakur, en ekki blautur, meðalfrjór, vel framræst.
     
Sjúkdómar   Runninn hefur mikið mótstöðuafl gegna sjúkdómum og meindýrum.
     
Harka   4
     
Heimildir   1, http://davesgarden.com, http://www.friendsofhefarm.ca, http://gardenaway.com, http://www.naturehills.com, http://mosaid.org
     
Fjölgun   Yrkjunum verður aðeins fjölgað með græðlingum, sumargræðlingum, erfiðara er að nota vetrargræðlinga, einnig með því að að skipta rótarhnausnum. Ágræðsla er líka möguleg. Plöntur upp af fræi eru aðeins notaðar sem ágræðslutré/runni.
     
Notkun   Stórir runnar sem þurfa gott rými til að ná góðum þroska. Stakir eða í þyrpingum. Blómin góð til afskurðar.
     
Nytjar   REYNSLA: Í Lystigarðinum er til ein aðkeypt planta sem var gróðursett í beð 2004. Þrífst vel, ekkert kal, blómstrar.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is