Halldór Laxness

"Blóm eru ódauðleg... þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, - einhversstaðar."

Acer palmatum v. palmatum
Ættkvísl   Acer
     
Nafn   palmatum
     
Höfundur   Thunb.
     
Ssp./var   v. palmatum
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Japanshlynur
     
Ætt   Hlynsætt (Aceraceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni - tré
     
Kjörlendi   Sól og skjól
     
Blómlitur   Purpuralitur
     
Blómgunartími   Vor
     
Hæð   8 - 12 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Tré eða runni sem getur þó orðið allt að 25 m í heimkynnum sínum, en allt að 12 m í ræktun hérlendis a.ö.l.
     
Lýsing   Börkur grár eða grá-ljósbrúnn, sléttur. Sprotar fremur grannir, hárlausir, grænir eða rauðleitir. Laufin með 5-7 flipa, allt að 5 × 4,5 sm, flipar lensulaga, odddregnir, græn á efra borði, ljósari neðan, hárlaus, jaðrar með tvöfaldar tennur, sem vita fram. Blómskipunin upprétt, með 10-20 purpuralit blóm. Aldin allt að 3 sm, hnotir með þunnan aldinvegg, vængir mætast í gleiðu horni.
     
Heimkynni   Japan, Taivan.
     
Jarðvegur   Rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1, 2, http://apps.rhs.org
     
Fjölgun   Ágræðsla, græðlingar. Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld.
     
Notkun/nytjar   Stakstætt tré, í raðir. Ræktaður í rökum en vel framræstum jarðvegi. Vökvið að sumrinu ef þurfa þykir. Litur laufanna er fallegastur í dálitlum skugga, en getur verið ágætur í fullri sól. Lauf geta orðið fyrir skaða vegna þurrks eða ef þau eru of mikið áveðurs.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum 2015.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is