Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Andromeda polyfolia
Ættkvísl   Andromeda
     
Nafn   polyfolia
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ljósalyng
     
Ætt   Lyngætt (Ericaceae)
     
Samheiti   A. polifolia L.
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hvítur-fölbleikur.
     
Blómgunartími   Síðla vors-snemmsumars.
     
Hæð   10 sm (-42 sm).
     
Vaxtarhraði  
     
 
Ljósalyng
Vaxtarlag   Uppréttur til útafliggjandi runni sem getur orðið allt að 42 sm hár, en er venjulega allt að 10 sm hár. Stönglar grannir og seigir, hárlausir.
     
Lýsing   Laufin 8-50 × 2-8 mm, heilrend, bandlaga-aflöng, jaðrar innundnir, leðurkennd, hvassydd, dökkgræn ofan, bláleit neðan. Blómin 2-8 í endastæðum sveipum sem er allt að 3, blómleggir 0,5-2 sm, þráðlaga, niðursveigðir í toppinn. Bikar rauðmengaður, flipar 1-2 mm, 5 talsins, tígullaga, bláleitir. Krónan 5-7 mm, krukkulaga, hvít til fölbleik, með 5 tennur, stuttar, aftursveigðar. Fræflar og separ jafnstórir.ε
     
Heimkynni   N Evrópa, S Alpafjöll, SM Sovétríkin, A Karpatafjöll.
     
Jarðvegur   Rakur, vel framræstur, súr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, sáning.
     
Notkun   Súr beð, brekkur, náttúrlegir garða.
     
Nytjar   REYNSLA: Ljósalyng hefur af og til verið í ræktun í Lystigarðinum, bæði erlendar og innlendar plöntur. Hafa reynst skammlífar í ræktuninni hér. Harðgerður runni, sem hefur fundist villt á Austfjörðum - ekki auðveld í ræktun.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Ljósalyng
Ljósalyng
Ljósalyng
Ljósalyng
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is