Snorri Hjartarson - Lyng

Gott er að leggjast í lyngið,
sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströnd
og hylur þig gleymsku.

Comarum palustris
Ættkvísl   Comarum
     
Nafn   palustris
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Engjarós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti   Potentilla palustris (L.) Scop.
     
Lífsform   Fjölær jurt
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Dumbrauður.
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   15-25 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Jarðstöngull langur og skriðull.
     
Lýsing   Lauf fjöðruð, smálauf 3, 5 eða 7 talsins, allt að 6 x 2 sm, aflöng, jaðrar grófsagtenntir, næstum hárlaus neðan. Blómin allt sað 3 sm í þvermál, á allt að 45 sm löngum stönglum, í strjálblóma, endastæðum kvíslskúf. Bikarblöð allt að 15 mm, egglaga, odddregin, með purpuraslikju. Utanbikarblöð bandlaga, miklu minni en bikarblöðin. Krónublöð dökkburpura, hálf lengd bikarblaðanna.
     
Heimkynni   Ísland, Evrópa, N N Ameríka
     
Jarðvegur   Rakur, blautur mýrajarðvegur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun   Við tjarnir og læki, mýrabeð.
     
Nytjar   REYNSLA: Harðgerð, íslensk jurt sem oft flutt í garða. Þrífst vel í mýrabeði í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is