Snorri Hjartarson - Lyng

Gott er að leggjast í lyngið,
sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströnd
og hylur þig gleymsku.

Ranunculus alpestris
Ættkvísl   Ranunculus
     
Nafn   alpestris
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallasóley
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Snjóhvítur/gul miðja.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   10-15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallasóley
Vaxtarlag   Hárlaus, fjölær jurt með trefjarætur, stönglar allmargir, 3-12 sm.
     
Lýsing   Laufin grunnlauf, glansandi dökk græn, kringlótt, 3-5 flipótt, flipar djúp bogtennt. Blómin stök eða 2-3, hvít, allt að 2 sm í þvermál. Bikarblöð með rauðbrúnum blæ. Krónublöð öfughjartalaga. Blómbotn hárlaus. Aldin öfugeggvala, trjóna grönn, bein.
     
Heimkynni   Alpafjöll (fjöll í Evrópu).
     
Jarðvegur   Meðalrakur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting að vori og hausti, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir (neðarlega), í skrautblómabeð, í kanta.
     
Reynsla   Harðgerð, bráðfalleg og auðræktuð steinhæðarplanta.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjallasóley
Fjallasóley
Fjallasóley
Fjallasóley
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is