Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.
Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.
Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.
Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.
|
Ættkvísl |
|
Ranunculus |
|
|
|
Nafn |
|
glacialis |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Jöklasóley |
|
|
|
Ætt |
|
Sóleyjarætt (Ranunculaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Hvítur (roðnar með aldrinum). |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júní - júlí (oft lengur). |
|
|
|
Hæð |
|
5-25 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Fjölær jurt, hárlaus nema bikarblöðin, rætur eru trefjarætur. Stöngullinn stinnur, 4-25 sm.
|
|
|
|
Lýsing |
|
Grunnblöðin dökkgræn, dálítið kjötkennd, 3-flipótt, flipar með legg, flipar djúpskiptir. Stöngullauf minni, leggstutt eða legglaus. Blómin 1-3, hvít eða fölbleik, verða rauðleit eftir að blómið hefur frjóvgast, (sem hefur í för með sér betri varmaupptöku til að hjálpa fræjunum að þroskast), 2-3 sm í þvermál. Bikarblöð með þétt rauðbrún hár á neðra borði. Krónublöð kringluleit, framjöðruð. Blómbotn hárlaus, fræhnotir hárlausar, með væng, 2,5 mm.
|
|
|
|
Heimkynni |
|
Norðurhvel, háfjöll Evrópu, Ísland. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Léttur, framræstur, meðalrakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
4 |
|
|
|
Heimildir |
|
0 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting, sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir. Þolir ekki kalkríkan jarðveg. |
|
|
|
Reynsla |
|
Íslensk tegund vandræktuð á láglendi, betra að hafa í sólreit yfir veturinn. Harðgerð, oft skammlíf á betri stöðum en þrífst vel í útsveitum. Með hæsta skráðan vaxtarstað allra blómplantna í Evrópu - í fjallinu Finsteraarhorn í 4275m hæð. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|