Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Rhodiola |
|
|
|
Nafn |
|
wallichiana |
|
|
|
Höfundur |
|
(Hook.) S.H. Fu. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
|
|
|
|
Ætt |
|
Hnoðraætt (Crassulaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
Sedum crassipes |
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Gulgrænn (brúnleit með aldri) |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júní-júlí. |
|
|
|
Hæð |
|
15-30 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Fjölær jurt, allt að 30 sm há, jarðstönglar stundum skriðulir, stönglar að hluta með hreistur. |
|
|
|
Lýsing |
|
Blómstönglar 15-30 sm háir. Laufin stakstæð, 10-30 x 1-3 mm, mörg upp eftir stönglinum, í pörum, legglaus, bandlaga, hvassydd, grunnur bogadregin, hárlaus, jaðar tenntur við oddinn, miðrif með gróp á efra borði. Blómskipunin þétt með fáblóma skúf. Blómin allt að 12 mm í þvermál. Bikarblöðin 5, oftast lauskrýnd, flipar 5-8 x 1,5 mm, þríhyrnd, langydd. Krónublöð 5, 6-11 x 1,5-2,5 mm, oddbaugótt, íhvolf, hvít, gulgræn til fölgul, stundum með bleika slikju. Fræflar jafn löng og krónublöðin. Frjóhnappar appelsínugulir en verða dökkpurpura. Frævur eru grænar. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Himalaja, V Kína. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Þurr, framræstur, fremur ófrjór. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
6 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting, sáning, græðlingar. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Sem þekja, í hleðslur, í kanta, í steinhæðir. |
|
|
|
Reynsla |
|
Harðgerð planta. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|