Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð. Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.
|
Ættkvísl |
|
Rhododendron |
|
|
|
Nafn |
|
ferrugineum |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Urðalyngrós |
|
|
|
Ætt |
|
Lyngrós (Ericaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Sígrænn runni. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól, hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Djúpbleikur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júlí. |
|
|
|
Hæð |
|
Allt að 1,5 m |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
Hægvaxta. |
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Sígrænn, útbreiddur, lítill runni allt að 1,5 m hár með uppréttar og/eða uppsveigðar greinar. Ungar greinar þétt hreistraðar, stundum með fáeinum þornhárum. |
|
|
|
Lýsing |
|
Lauf 2,8-4 sm, mjó-oddbaugótt til oddbaugótt, jaðrar ögn innundnir, dökk græn ofan, rauðbrún neðan með þétt hreistur sem skarast. Klasar með mörg blóm. Bikar með allt að 1,5 mm langa flipa með hreistur og þornhár á jöðrunum. Króna 1,2-1,7 sm, djúpbleik (sjaldan fölbleik eða næstum hvít) með hreistur og dúnhærð á ytra borði. Eggleg með hreistur. Stíll hárlaus og ekki með hreistur, um það bil tvisvar sinnum lengri en egglegið. Fræhýði með fáein hreistur, 5-7 mm. |
|
|
|
Heimkynni |
|
M Evrópa (fjöll). |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Súr, lífefnaríkur, frjór, rakur, vel framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
4 |
|
|
|
Heimildir |
|
1, 7 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning, síðsumargræðlingar með hæl (hormónameðferð). |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í blönduð beð, í kanta, í steinhæðir. |
|
|
|
Reynsla |
|
Nokkrar plöntur hafa verið lengi í ræktun í Lystigarðinum, kala ekkert eða lítið flest ár, blómstrar flest ár mikið. Sama er að segja um yngri plöntur, aðkeyptar eða sem hefur verið sáð til. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
‘Coccineum’ Blómin fagurrauð. ---
‘Glenarn’ Blómin djúp rósbleik, lauf snúin. Falleg planta.
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|