Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Ribes burejense
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   burejense
     
Höfundur   F. Schmidt.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ígulrifs
     
Ætt   Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
     
Samheiti   Grossularia burejensis. (Fr. Schmidt.)A.Berg.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur til bleikleitur.
     
Blómgunartími   Maí.
     
Hæð   -1 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 1 m hár. Greinar þéttþyrnóttar og þornhærðar.
     
Lýsing   Laufin 2-6 sm, kringlótt, hjartalaga við grunninn, með 3-5 snubbótta flipa, jaðrar tenntir, mjúk dúnhár og kirtilhár á efra borði. Blómin stök eða tvö og tvö saman á stuttum leggjum, 3-6 mm. Blómin bjöllulaga. Fræflarnir standa út úr blóminu. Berin 1 sm, þéttþornhærð, græn, bragðgóð.
     
Heimkynni   NA Asía, Alaska, N Kalifornía.
     
Jarðvegur   Rakur, tiltölulega vel framræstur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Ribes+burejense, www.eFloras.org, Flora of China.
     
Fjölgun   Sáning í sólreit að haustinu, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í runnabeð, í þyrpingar. Berin eru æt, soðin eða ósoðin.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1982, kól ögn allra fyrstu árin en síðan ekkert (2011).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is