Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Rosa blanda
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   blanda
     
Höfundur   Ait.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Þokkarós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Rosa fraxinifolia C. C. Gmel. non Borkh.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Bleikur.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   -200 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Þokkarós
Vaxtarlag   Villirós, náskyld R. pendulina. Runninn er uppréttur, gisinn, lotublómstrandi, verður allt að 2 m hár. Greinar eru grannar, brúnar, næstum þyrnalausar, aðeins með beina þyrna á stangli neðst meðan þeir eru ungir, þyrnarnir detta síðan af.
     
Lýsing   Smáblöð oddbaugótt til öfugegglaga, ydd eða snubbótt, grágræn, ekki glansandi, ljósari neðan og dúnhærð, grófsagtennt og einsagtennt, Blómin 1-3, bleik, 5-6 sm breið, ilma lítið eitt. Bikarblöð heilrend, dúnhærð og kirtilhærð á bakhliðinni, upprétt og langæ á nýpunum. Stilkar og blómleggir hárlaus, bikarinn hárlaus. Nýpur hnöttóttar-egglaga-ílangar, 1 sm í þvermál, dökkrauðar.&
     
Heimkynni   Austur N-Ameríka.
     
Jarðvegur   Meðalrakkur, frjór, vel framræstur, þolir ekki að standa í vatni.
     
Sjúkdómar   Viðkvæm fyrir hunangssvepp.
     
Harka   2
     
Heimildir   = 1, 7, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Rosa+blanda
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, sáning.
     
Notkun/nytjar   Rósin er notuð í þyrpingar, sem stakstæður runni, í blönduð beð.
     
Reynsla   Þokkarósinni var sáð í Lystigarðinum 1986 og 1988, kala lítið eitt að minnsta kosti í sumum árum, vaxa vel, engin blóm 2008. (2009). Myndirnar eru teknar í Löngumýri 7, Akureyri, ®EGunn.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Þokkarós
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is