Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Rosa glauca
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   glauca
     
Höfundur   Pourr.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rauðblaðarós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Rosa rubrifolia Vill., Rosa ferruginea auct. non Vill.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Rauðbleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   150-250 sm (-300 sm)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Rauðblaðarós
Vaxtarlag   Villirós. Uppréttur runni sem verður allt að 300 m hár, greinar grannar og brúnrauðar, döggvaðar, með fáa þyrna, þyrnar fremur stuttir, beinir eða króklaga og grannir, þornhár á milli þyrnanna. Lauf brúnleit-purpura og bládöggvuð. Smáblöðin 5-7, hárlaus, hvass-sagtennt.
     
Lýsing   Blómin fjölmörg í klasa, rauðbleik og hvít innst með gula fræfla í miðjunni, 3-4 sm breið, ilma lítið. Bikarblöð uppstæð við aldinþroskann, detta síðan af. Nýpur smáar, hnöttóttar, sléttar með fáein kirtilþornhár, 1,5 sm breiðar, brúnrauðar, kirsuberjarauðar eða purpuralitar.
     
Heimkynni   Fjöll M & S Evrópu.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, sendinn, ekki of frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar   Ryðsveppur.
     
Harka   2
     
Heimildir   = 1, Huxley & al. 1992: The New Royal Horticultural Society Dictionary of Gardening 4, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, sveiggræðsla, rótarskot, sáning.
     
Notkun/nytjar   Notuð í limgerði, í þyrpingar, sem stakstæður runni eða í blönduð beð. Harðgerður runni en er hætt við að sýkjast af ryðsvepp.
     
Reynsla   Þrífst vel í görðum, vex vel en blómstrar mismikið. Harðgerð rós, þarf að grisja og/eða klippa reglulega, ásótt af ryðsvepp, (síður á þurrum stöðum en rökum).
     
Yrki og undirteg.   Rosa glauca 'Nova' sjá næstu síðu.
     
Útbreiðsla  
     
Rauðblaðarós
Rauðblaðarós
Rauðblaðarós
Rauðblaðarós
Rauðblaðarós
Rauðblaðarós
Rauðblaðarós
Rauðblaðarós
Rauðblaðarós
Rauðblaðarós
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is