Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Rosa pimpinellifolia 'Grandiflora'
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   pimpinellifolia
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Grandiflora'
     
Höf.   (fyrir 1818)
     
Íslenskt nafn   Þyrnirós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   R. ‘Altaica’, R. pimpinellifolia v. altaica (Willdenow.) Thory, R. pimpinellifolia v. grandiflora Ledebour
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Rjómahvítur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   Allt að 250 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Þyrnirós
Vaxtarlag   Fannst um 1818 á mörkum Síberíu og Mongólíu. Villirós. Runninn einblómstrandi, uppréttari en aðaltegundin, 250 sm hár og 180 sm breiður, greinarnar ekki eins þyrnóttar og á aðaltegundinni.
     
Lýsing   Smálaufin oftast 9, axlablöð mjó, jaðar með kirtilhár. Blómin með mikinn ávaxtailm, 5-7,5 sm í þvermál, einföld, hvít, ljósgul þegar þau opnast. Blómleggir og bikarar sléttir. Nýpur hnöttóttar, stærri en á aðaltegundinni, brúnrauðir-purpuralitar.
     
Heimkynni   Síbería, Dsungaria, Atlai-fjöll.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H2
     
Heimildir   = 1, 2, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, http://www.floralinnea.com/pages/alfadeskr, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm
     
Fjölgun   Vetrar- og sumargræðlingar og sáning.
     
Notkun/nytjar   Rósin er mjög nægjusöm og auðræktuð.
     
Reynsla   Rosa pimpinellifolia ‘Grandiflora’ kom í Lystigarðinum 1984 og var plantað í beð það sama ár. Flutt í annað beð 1992. Kelur lítið, þrífst vel og blómstrar mikið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Þyrnirós
Þyrnirós
Þyrnirós
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is