Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Sambucus pubens
Ættkvísl   Sambucus
     
Nafn   pubens
     
Höfundur   Michx.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Dúnyllir
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hvítur - gulur.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   2-4 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Dúnyllir
Vaxtarlag   Uppréttur, grófgerður, fyrirferðarmikill, dúnhærðir árssprotar með brúnum korkvörtum, hvítur mergur.
     
Lýsing   Blómskipan keilumynduð, allt að 7 sm að lengd, blómstilkar dúnhærðir, þefill blóm. Smáblöðin 5-9 reyndar oftast 7, dúnhærð, hvassar reglulegar tennur, egglaga eða lensulaga, 3-7 sm að lengd. Aldin 5 mm skarlatsrautt ber, fræ talin eitruð en eftirsótt af fuglum.
     
Heimkynni   N Ameríka.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, frjór, djúpur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sumar- og vetrargræðlingar, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í blönduð beð, sem stakstæður runni.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein gömul planta undir þessu nafni, kelur lítið. Harðgerð tegund, þurftafrek, ekki vindþolin, kelur stundum allnokkuð. Hentar vel norðan og austan við hús á skugg- og skjólsæla staði. Víða í görðum á Akureyri.
     
Yrki og undirteg.   Nokkur yrki í ræktun erlendis en fá þeirra ef nokkur í ræktun hérlendis svo sem 'Dissecta' sem er með flipóttu laufi, 'Maxima' er með áberandi stórri blómskipan, 'Leucocarpa' er með hvítum berjum og 'Xanthocarpa' með gulleitum berjum (=1).
     
Útbreiðsla  
     
Dúnyllir
Dúnyllir
Dúnyllir
Dúnyllir
Dúnyllir
Dúnyllir
Dúnyllir
Dúnyllir
Dúnyllir
Dúnyllir
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is