Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Saponaria caespitosa
Ættkvísl   Saponaria
     
Nafn   caespitosa
     
Höfundur   DC.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Blikufreyðir
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Bleik-purpura.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   - 15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Þéttþýfð, næstum hárlaus fjölær jurt, allt að 15 sm há, trékennd neðst.
     
Lýsing   Grunnlauf bandlaga, þykk, með kjöl. Blómskipunin fáblóma, blómin næstum legglaus, krónutunga 4-7 mm, öfugegglaga, heilrend, bleikpurpura. Krónuhreistur áberandi.
     
Heimkynni   M Pyreneafjöll.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, lífrænn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar síðsumars.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í hleðslur, í klappir, í beð.
     
Reynsla   Harðgerð, hefur vaxið vel í Lystigarðinum af og til.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is