Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Saxifraga spathularis
Ættkvísl   Saxifraga
     
Nafn   spathularis
     
Höfundur   Brot.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Spaðasteinbrjótur
     
Ætt   Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
     
Samheiti   Saxifraga umbrosa auct. lusit., non L.
     
Lífsform   Fjölær, sígræn jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur, rauðdröfnótt.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   10-40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Sígrænn fjölæringur, sem myndar blaðhvirfingar á jarðlægum sprotum sem minna á renglur, myndar gisnar breiður með tímanum.
     
Lýsing   Laufblaðkan 1,5-5 x 1,2-3 sm, kringlótt til aflöng-sporbaugótt, hárlaus, jaðrar með 5-11 tennur á hvorri hlið (3 eða 4 á smávöxnum plöntum), tennur venjulega hvassyddar en stöku sinnum snubbóttar. Gagnsær kantur um það bil 0,1 mm á breidd. Laufleggur að minnsta kosti sumra laufa lengri en blaðkan, flatur með aðeins fáein randhár. Blómstilkur allt að 50 sm hár. Krónublöð um það bil 5 mm, oddbaugótt, hvít með allmargar rauðar doppur á þeim miðjum og 2 gular bletti við grunninn.
     
Heimkynni   SV Evrópa, Írland.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H3
     
Heimildir   2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beð, í kanta.
     
Reynsla   Var lengi ræktaður sem skuggasteinbrjótur hér áður og fyrr og mjög víða í görðum bæði norðan og sunnanlands. Til eru nokkur gömul eintök í Lystigarðinum, sem þrífast vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is