Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.
Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.
Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.
Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.
|
Ættkvísl |
|
Saxifraga |
|
|
|
Nafn |
|
x andrewsii |
|
|
|
Höfundur |
|
Harw. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Írasteinbrjótur |
|
|
|
Ætt |
|
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær, sígræn jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól, hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Hvítur með rauðar doppur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júní-júlí. |
|
|
|
Hæð |
|
15-25 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Sennilega blendingur bergsteinbrjóts (S. paniculata) og spaðasteinbrjóts (S. spathularis).
Þéttvaxinn fjölæringur, blaðhvirfingar að 12 sm í þvermál. Myndar breiður fagurgrænna, skállaga blaðhvirfinga.
|
|
|
|
Lýsing |
|
Lauf bandlaga með tennta jaðra. Blómstönglar rauðleitir að 25 sm. Blómin í stuttum topp. Krónublöð hvít með rauðum doppum eða blettum. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Garðablendingur. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Fremur rakur, meðalfrjór, framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
3 |
|
|
|
Heimildir |
|
1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting, sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir, sem undirgróður, í beð. |
|
|
|
Reynsla |
|
Harðgerð, töluvert ræktaður í Reykjavík (HS). Ekki til í Lystigarðinum sem stendur. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|