Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Sedum aizoon 'Aurantiacum'
Ættkvísl   Sedum
     
Nafn   aizoon
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Aurantiacum'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gullhnoðri
     
Ætt   Hnoðraætt (Crassulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Dökkgulur.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   30-40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Gullhnoðri
Vaxtarlag   Sjá aðaltegund.
     
Lýsing   Sjá aðaltegund.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Léttur, sendinn, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Skipting, sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beð, í hleðslur, í kanta.
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.   'Euphorbioides' ('Aurantiacus') er þéttvaxnari og kröftugri en aðaltegudin, og blóminn dökkgulari.
     
Útbreiðsla  
     
Gullhnoðri
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is