Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Sedum middendorffianum
Ættkvísl   Sedum
     
Nafn   middendorffianum
     
Höfundur   Maxim.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Þúfuhnoðri
     
Ætt   Hnoðraætt (Crassulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulur-appelsínugulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   15-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 30 sm há. Jarðstönglar skriðulir, greinóttir, trékenndir.
     
Lýsing   Stönglar margir, uppréttir, greinast við grunninn. Laufin bandlaga, mjó, meira spaðalaga við grunn stönglanna, greypt, meira eða minna snubbótt, jaðar tenntur við oddinn. Blómskipunin lotin, líkist punti, margblóma skúfur. Blómin legglaus efst, með legg neðantil, 18 mm í þverál. Bikarblöðin 5, bandlaga, snubbótt, hálf lengd krónublaðanna. Krónublöð 5,5-6 mm, aflöng-lensulaga, mjóydd, gul, fræflar 10, appelsínugulir. Fræhýði 4 mm, gulgræn, útstæð.
     
Heimkynni   A Síbería, Mongólía, Manchúría.
     
Jarðvegur   Vel framræstur, sendinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beð, í kanta, í hleðslur.
     
Reynsla   Harðgerð jurt.
     
Yrki og undirteg.   S. m. var. diffusum (Móahnoðri) er hærri og með breiðari blöð.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is