Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Sidalcea candida
Ættkvísl   Sidalcea
     
Nafn   candida
     
Höfundur   A. Gray.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Geislaára, mexíkórós
     
Ætt   Malvaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   snjóhvítur
     
Blómgunartími   júlí-ágúst
     
Hæð   0.8-1m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   upprétt, breiðir blaðbrúskar, Þarf uppbindingu
     
Lýsing   blómin í löngum klösum, silkigljáandi krónubl. enginn utanbikar kringluleit og bogtennt neðan til en stöngulbl. djúpflipótt
     
Heimkynni   N Ameríka
     
Jarðvegur   sendinn, Þurr
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun/nytjar   skrautblómabeð (góðu skjóli)
     
Reynsla   Meðalharðger-harðger
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is