Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Sorbus mougeotii
Ættkvísl   Sorbus
     
Nafn   mougeotii
     
Höfundur   Soy.-Willem. & Godron.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Munkareynir
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Sorbus scandica H.J. Coste
     
Lífsform   Stór, lauffellandi runni - lítið tré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulhvítur.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   5-7 m
     
Vaxtarhraði   Fremur hægvaxta.
     
 
Munkareynir
Vaxtarlag   Fjórlitna, lauffellandi tré með geldæxlun. Tréð líkist silfurreyni (Sorbus intermedia) og goðareyni (S. latifolia) en er með breiðari krónu.
     
Lýsing   Neðra borð laufa er hvít-grá lóhærð með 9-12 hliðaræðapör sem ná út í jaðrana milli flipanna. Aldin 8 mm, oddvala, rauð.
     
Heimkynni   N Evrópa (Alpafjöll, Júrafjöll).
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, sem stakstætt tré.
     
Reynsla   LA 88862 í P2-G04, gróðursett 1994, kom sem nr. 173 Washington U Park Arb 1988. Afar hægvaxta tré og stundum dálítið étið af maðki en harðgert. Kól aðeins í byrjun en ekkert síðstu 10 árin.
     
Yrki og undirteg.   Sorbus mougeotii ssp. mougeotii 'Jæren', pl. viv. frá Sólskógum 2007 (ekki staðfest nafn).
     
Útbreiðsla  
     
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Munkareynir
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is