Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Sorbus norvegica
Ættkvísl   Sorbus
     
Nafn   norvegica
     
Höfundur   (DC.) Hedl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Norðmannsreynir
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni - lítið tré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   3-5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Norðmannsreynir
Vaxtarlag   Lítið tré sem verður 3-5 m hátt.
     
Lýsing   Laufin breið-aflöng til bogformuð, hvass tvísagtennt, ekki með tennur í á neðsta 1/5 hluta laufsins, sljótenntar í oddinn, með ljósa gráhvíta lóhæringu á neðra borði og dökkgrænt efra borð. Blómin hvít í strjálum, kúluformuðum klösum. Aldin minna á epli, 8-12 mm löng. Líklega aðallega kynlaus fræmyndun. (2n = 68).
     
Heimkynni   Noregur, hér og hvar með ströndum fram. Svíþjóð (Bóhúslén og Dalsland).
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, rakur-meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   9, linnaeus.mrm.se/flora/di/rosa/sorbu/sorbnor.html
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í trjá- og runnabeð.
     
Reynsla   LA 87771 í F1-G17, gróðursett 1992, kom sem nr. 190 frá Kristiansand HB Gimle 1986. Kól aðeins fyrstu árin en ekkert hin síðari ár.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Norðmannsreynir
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is