Hulda - Úr ljóðinu Sorg Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
|
Ættkvísl |
|
Spiraea |
|
|
|
Nafn |
|
japonica |
|
|
|
Höfundur |
|
L. f. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Japanskvistur |
|
|
|
Ætt |
|
Rósaætt (Rosaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
Spiraea fritschiana C.K.Schneid. |
|
|
|
Lífsform |
|
Lauffellandi runni. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól, hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Rósbleikur til skarlatsrauður. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Ágúst-september. |
|
|
|
Hæð |
|
-1,5 m |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
Hægvaxta. |
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Lauffellandi runni, allt að 1,5 m hár. Greinar stinnar uppréttar, greinast lítið, oftast sívalar, stundum hliðflatar og kantaðar, hárlausar eða dúnhærðar í fyrstu. |
|
|
|
Lýsing |
|
Lauf 2-8 × 0,75-4 sm, lensulaga til egglaga, ydd til odddregin, bogadregin til mjófleyglaga við grunninn, hvass sagtennt, hárlaus til dúnhærð. Blóm 6-9,5 mm í þvermál, rósbleik til skarlatsrauð, sjaldan hvít, mörg saman í flötum, stundum stutt-dúnhærðum og endastæðum hálfsveip, sem er allt að 30 sm í þvermál. Blómskipanirnar eru í efstu lauföxlunum. Blómskipunarleggur hárlaus eða ullhærður. Bikarblöð upprétt við blómgun, seinna skástæð, tígullaga, ydd. Krónublöð styttri en fræflarnir. Hýði hárlaus, nema á saumunum, upprétt eða dálítið skástæð. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Japan, Kína. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Meðalfrjór, meðalrakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
5 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sumargræðlingar, skipting, sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í þyrpingar, sem stakstæður runni, í fjölæringabeð, ef til vill í raðir, í kanta, sem óklippt limgerði. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1989, kelur nokkuð öll ár og blómstrar mikið.
Meðalharðgerður-harðgerður, hægvaxta, má klippa alveg niður árlega. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
Fjölmörg yrki eru í ræktun svo sem 'Macrophylla', 'Crispa', 'Froebelii', 'Goldflame', 'Limemound', 'Little Princess', 'Snowmound' og fleiri. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|