Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Spiraea × billardii
Ættkvísl   Spiraea
     
Nafn   × billardii
     
Höfundur   Hérincq.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Úlfakvistur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól, (hálfskuggi).
     
Blómlitur   Skærbleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   1,5-2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Úlfakvistur
Vaxtarlag   Uppréttar greinar, nauðalíkur dögglingkvisti, mikil rótarskot, árssprotar fínhærðir og rauðleitir í fyrstu, seinna brúnir og að mestu hárlausir.
     
Lýsing   Lauffellandi runni, allt að 2 m hár. Líkari dögglingskvistinum en víðikvistinum, en laufin eru ydd bæði í toppinn og grunninn, dúnhærð, gráleit á neðra borði. Smágreinar brúnar, dúnhærðar. Lauf 5-8 sm, aflöng-lensulaga, ydd í báða enda, djúp og hvass sagtennt í efsta 2/3 hlutanum, grágræn og lóhærð á neðra borði. Blómin eru skærbleik, í mjóum, þéttum, smá-lóhærðum skúf, sem er allt að 20 sm hár. Fræflarnir tvisvar sinnum lengri en krónublöðin. Aldin hárlaus, langæir stílarnir eru útstæðir.
     
Heimkynni   Garðablendingur (S. douglasii Hook. x S. salicifolia L.).
     
Jarðvegur   Meðalrakur, frjór, sendinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sumar- og vetrargræðlingar, rótarsprotar, skifting.
     
Notkun/nytjar   Þyrpingar, óklippt limgerði, stakstæð, beð, kanta.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til einn gamall runni og tvær plöntur sem sáð var til 2008 og eru í uppeldi. Harðgerð planta, sem þolir vel klippingu og ráðlegt er að klippa hann vel niður á hverju vori og fækka rótarskotum. Líkist mjög dögglingskvisti en dögglingskvistur er með lauf bogadregin í báða enda, dekkri blóm og þéttari hæringu á neðra borði laufa (víðikvistur er með hárlaus blöð með fleyglaga grunn en bogadregin í oddinn).
     
Yrki og undirteg.   Spiraea x billiardii 'Alba' er með hvít blóm.
     
Útbreiðsla  
     
Úlfakvistur
Úlfakvistur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is