Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Tulipa kaufmanniana
Ættkvísl   Tulipa
     
Nafn   kaufmanniana
     
Höfundur   Reg.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kaupmannatúlípani
     
Ætt   Liliaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   laukur (15)
     
Kjörlendi   sól og skjól
     
Blómlitur   hvítur-ljósgul m/rauðum röndum
     
Blómgunartími   apríl-maí
     
Hæð   0.2-0.4m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Kaupmannatúlípani
Vaxtarlag   Sortir, flestar blendingar með dílatúlípana (T. greigii)
     
Lýsing   Blóm fljótt mikið útbreidd, dökkir blettir í miðju og rendur í kring með öðrum lit, ýmsir blómlitir sorta blöðin stutt og óvenju breið, blágræn oft brúnflekkótt/strípuð oddmjó, mjúk, stilklaus
     
Heimkynni   M Asía, Túrkestan
     
Jarðvegur   léttur, frjór, sendinn
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   hliðarlaukar, sáning, skammlífur, endurnýja eftir 2-3ár
     
Notkun   steinhæðir, skrautblómabeð
     
Nytjar   Harðger, ekki verra að skýla að vetri
     
Yrki og undirteg.   'The First' hvít, 'Stresa' gul/rauð, 'Showwinner' hárauð, 'Giuseppe Verdi' gul/rauðgul, 'Hearts Delight' hvít/rauð, 'Daylight, 'Cesar Franck', 'Alfred Cortot', 'Josef Kafka' ofl. ofl.
     
Útbreiðsla  
     
Kaupmannatúlípani
Kaupmannatúlípani
Kaupmannatúlípani
Kaupmannatúlípani
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is