Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Veronica gentianoides
Ættkvísl   Veronica
     
Nafn   gentianoides
     
Höfundur   Vahl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kósakkadepla
     
Ætt   Scrophulariaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   hvítur-fölblár/dekkri æðar
     
Blómgunartími   júní
     
Hæð   0.3-0.8m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Kósakkadepla
Vaxtarlag   Nokkuð fyrirferðarmikil með upprétta stöngla
     
Lýsing   Blómin í löngum klösum, blöðin allstór, breiðlensulaga, þykk, gljáandi
     
Heimkynni   SV Asía, Kákasus, Litla Asía
     
Jarðvegur   framræstur, frjór, rakaheldinn
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting, sáning (skipta á 3-4 ára fresti)
     
Notkun/nytjar   steinhæðir, kanta, beð, undirgróður
     
Reynsla   Harðger og auðræktuð, ein allra fallegasta deplan (H. Sig.)
     
Yrki og undirteg.   'Variegata' með ljósgræn og hvítflekkótt blöð.
     
Útbreiðsla  
     
Kósakkadepla
Kósakkadepla
Kósakkadepla
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is