Snorri Hjartarson - Lyng

Gott er að leggjast í lyngið,
sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströnd
og hylur þig gleymsku.

Tsuga heterophylla
Ættkvísl   Tsuga
     
Nafn   heterophylla
     
Höfundur   (Raf.) Sarg.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Marþöll
     
Ætt   Þallarætt (Pinaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænt tré.eða runni.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi.
     
Blómlitur   Grænn, gulur.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   3-15(-70) m
     
Vaxtarhraði   Hægvaxta.
     
 
Marþöll
Vaxtarlag   Hávaxið tré, sem verður 30-60 m hátt í heimkynnum sínum, en vex hérlendis sem Þéttvaxinn runni. Börkurinn er fremur þykkur, rauðbrúnn, krónan mjó keilulaga, toppurinn skagar langt upp, toppsprotinn næstum pensillaga, með mjög stuttar næstum láréttar hliðargreinar, endar greinanna slútandi. Ath. toppsproti slútir alltaf eins og á flestum öðrum þöllum
     
Lýsing   Ungar greinar gulbrúnar í fyrstu, seinna dökkbrúnar, langhærðar og haldast loðnar. Brum egglaga til kúlulag, smá og hærð. Barrnálar oftast strjálar, bandlaga, 5-20 mm langar, jaðrar fínsagtenntir, oddur þverdreginn-snubbóttur, aldrei framjaðraður, ofan dökkgræn, glansandi og með rákir, að neðan með 2 hvítar loftaugarendur, hvor úr 7-8 loftaugaröðum, græna rákin mjög mjó. Könglar legglausir, aflangir, 20-25 mm langir. Köngulhreistur öfugegglaga lengri en þau eru breið, heilrend. Fræ 2-3 mm löng, vængir 4-6 mm langir.
     
Heimkynni   Vestur N-Ameríka, frá Alaska til Kaliforníu.
     
Jarðvegur   Djúpur, vel framræstur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1, 7
     
Fjölgun   Sáning, vetrargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í raðir, í sígræn beð skuggamegin.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til ein planta sem kól ögn af og til framan af, í seinni tíð er það aðeins stöku grein sem verður fyrir kali. Hefur þrifist ágætlega í garðinum og vaxið jafnt og þétt. Planta sem gróðursett var 1988 er orðin um 1,2 m á hæð og vel það á breidd 2003. Hefur ekki gengið neitt í skógrækt hérlendis. Flott eintak til í Grasagarðinum í Reykjavík
     
Yrki og undirteg.   Nokkur yrki í ræktun erlendis sem vert væri að prófa, t.d. 'Argenteovariegata' þar sem endar á árssprotum eru nær hvítir; 'Conica' dvergvaxin með keilulaga vaxtarlag; 'Dumosa' sem er runnkennt yrki, lauf dökkgrænt á efra borði o. fl.
     
Útbreiðsla  
     
Marþöll
Marþöll
Marþöll
Marþöll
Marþöll
Marþöll
Marþöll
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is