Páll Ólafsson, Ljóðið Vetrarkveðja Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.
Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
|
| Ættkvísl |
|
Cornus |
| |
|
|
| Nafn |
|
alba |
| |
|
|
| Höfundur |
|
L. |
| |
|
|
| Ssp./var |
|
|
| |
|
|
| Höfundur undirteg. |
|
|
| |
|
|
| Yrki form |
|
|
| |
|
|
| Höf. |
|
|
| |
|
|
| Íslenskt nafn |
|
Mjallarhyrnir |
| |
|
|
| Ætt |
|
Skollabersætt (Cornaceae). |
| |
|
|
| Samheiti |
|
|
| |
|
|
| Lífsform |
|
Sumargrænn runni. |
| |
|
|
| Kjörlendi |
|
Sól (hálfskuggi). |
| |
|
|
| Blómlitur |
|
Gulhvítur. |
| |
|
|
| Blómgunartími |
|
Júní-júlí. |
| |
|
|
| Hæð |
|
2-3 m |
| |
|
|
| Vaxtarhraði |
|
|
| |
|
|
|
|
|
| Vaxtarlag |
|
Sumargrænn, bogaformaður, hömlulaus runni með rótarskot, allt að 3 m hár og 2,5 m breiður, stofnar jarðlægir til uppréttir og útstæðir, greinar hárlausar. Börkur mjög fallegur, greinarnar verða skær blóðrauðar á veturna og næstum því grænar aftur að vorinu. Greinar sléttar nema korkfrumurnar. Mergur hvítur. |
| |
|
|
| Lýsing |
|
Laufin eru gagnstæð, heil, breytileg, 4-8 sm, egglaga-oddbaugótt, með stutta, mjóa odda, dökkgræn ofan, blágræn neðan, æðastrengjapör 5-6. Lauf eru gulgræn fyrst á vorin en verða milligræn til dökkgræn. Blómin lítil í mjóum, flötum kvíslskúfum, 3-5 sm í þvermál, rjómalit/gulhvít. Aldin hvít til ljósblá, um 1 sm í þvermál, þroskast í júlí-ágúst. Fræin lengri en þau eru breið, íflöt til beggja enda.ε |
| |
|
|
| Heimkynni |
|
Síbería, N-Kína til Kóreu. |
| |
|
|
| Jarðvegur |
|
Rakur, meðalþurr, frjór. |
| |
|
|
| Sjúkdómar |
|
|
| |
|
|
| Harka |
|
3 |
| |
|
|
| Heimildir |
|
1, http://www.hort.uconn.edu |
| |
|
|
| Fjölgun |
|
Sumar- og haust- eða vetrargræðlingar með hæl, haustsáning, sveiggræðsla að vori. --- Plantan lifir af jafnvel í illa framræstan jarðvegi.
Auðvelt er að flytja plöntuna og koma nýjum til.
|
| |
|
|
| Notkun |
|
Í þyrpingar, blönduð beð, umferðaeyjar.
Fjarlægið elstu greinarnar til að hvetja til rótarskota, þar sem nýr stöngull er með fallegustu litina. --- Skrautlegir að vetrinum. |
| |
|
|
| Nytjar |
|
REYNSLA: Í Lystigarðinum eru til þrjár plöntur sem sáð var til 1988 og gróðursettar í beð 1993, 1994 og 1997, einnig eru til tvær pl0ntur sem sáð vart til 1990 og gróðursettar í beð 1993 og 1999 svo og ein planta sem sáð var til 1991 og gróðursett í beð 1994. ---
Meðalharðgerður runni, vex vel en kelur mikið, fallegastur ef klipptur alveg niður árlega. |
| |
|
|
| Yrki og undirteg. |
|
Ýmis yrki eru til erlendis svo sem:
‘Alleman's Compact’ – harðgerður, sjúkdómalaus þéttvaxið dvergform allt að 1,8 m hátt með rauða stofna að vetrinum.
‘Argenteo-marginata’ (einnig oft undir ‘Elegantissima’) – Laufin eru mjórri en á aðaltegundinni og jaðrar hvítir. Ekki eins kröftug planta aðaltegundin með rauða stofna að vetrinum. Algeng í gróðrarstöðvum erlendis.
‘Bloodgood’ – Úrval með mjög fallega, rauða stofna.
‘Bud's Yellow’– Oft í plöntulistum er með skærgula stofna, verður allt að 1,8 m hár og verður breiðari, getur verið góður valkostur í staðinn fyrir hinn sjúkdómanæma C. sericea ‘Flaviramea’.
--- ‘Siberian Pearls’ er form sem valið var vegna fjölda, hvítra blóma, fallegra aldina með hvítar/blá ‘ber’, stofnarnir eru rauðir.
|
| |
|
|
| Útbreiðsla |
|
|
| |
|
|
|
|