Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Dianthus chinensis
Ættkvísl   Dianthus
     
Nafn   chinensis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kínadrottning
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti   D. amurensis Jacques
     
Lífsform   Tvíær-skammlífur fjölæringur, ræktuð sem sumarblóm.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Ýmsir rauðir litir og hvítt.
     
Blómgunartími   Júní-september.
     
Hæð   15-60 (70) sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Kínadrottningin er venjulega dálítið hærð.
     
Lýsing   Grunnlaufin visna áður en plantan blómstrar. Stöngullauf lensulaga, ydd. Blómskipunin er strjálblóma 15 blóma klasi, blómin stór. Bikar um 2 sm, utanbikarblöð 4 til 6, mjókka snögglega í langan odd, um hálf lengd bikarsins. Krónutunga um 1,5 sm, öfugegglaga djúptennt eða klofin næstum til hálfs, bleik-lilla með purpura auga.
     
Heimkynni   Kína.
     
Jarðvegur   Þurr, sendinn, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sáning inni í gróðurhúsi í apríl, forræktuð fram í júní.
     
Notkun/nytjar   Í ker, í sumarblómabeð, í kanta.
     
Reynsla   Viðkvæm, eingöngu ræktuð sem sumarblóm hérlendis.
     
Yrki og undirteg.   Fjölmargar sortir í ræktun og það bætist við þær á hverju ári. ´Heddewigii' er hópur af þéttvöxnum, mjög blómviljugum yrkjum.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is