Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Artemisia ludoviciana
Ættkvísl   Artemisia
     
Nafn   ludoviciana
     
Höfundur   Nutt.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Silfurmalurt
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti  
     
Lífsform  
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími  
     
Hæð   0.8-1m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   beinir ógreindir hvítlóhærðir stönglar
     
Lýsing   blöðin grágræn, lensulaga, heilrennd að 11cm löng, hvítloðin á neðra blorði en gráleit að ofan sérstaklega meðan Þau eru ung; ræktuð fyrst og fremst vegna blaðfegurðar
     
Heimkynni   V N Ameríka, Mexíkó
     
Jarðvegur   Þurr, magur
     
Sjúkdómar   engir
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun/nytjar   beð
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.   'Silver Frost' 1m fínskipt blöð, 'Silver Queen' 0,75m, 'Valerie Finnis' 0.6m ofl.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is