Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Dianthus monspessulanus
Ættkvísl   Dianthus
     
Nafn   monspessulanus
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Flipadrottning
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti   D. sternbergii Sieber
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Bleikur eða hvítur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   20-50 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Flipadrottning
Vaxtarlag   Lausþýfð, hárlaus fjölær jurt, allt að 60 sm há. Stönglar grannir, greinóttir ofantil.
     
Lýsing   Laufin bandlaga eða bandlensulaga, odddregin, mjúk viðkomu. Blóm 2-7 saman (sjaldan stök), á stuttum leggjum, ilmandi. Bikar 1,8-2,5 sm, mjókkar dálítið ofantil. Utanbikarblöð 4, lensulaga, mjókka smám saman í mjóan grænan odd, 1/3 til ½ af lengd bikarsins. Krónutungan 1,2-2 sm skipt nærri til hálfs í mjóa hluta, bleik eða hvít.
     
Heimkynni   S og M Evrópa (fjöll).
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, sendinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1,2
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í kanta, í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Nokkur eintök í garðinum. Hefur reynst vel og er langlíf og harðgerð. Hefur reynst harðgerð á Reykjum (H. Sig.). Breytileg tegund.
     
Yrki og undirteg.   D. monspessulanus ssp. sternbergii (Sieber) Hegi er þéttari með bláleit lauf og stærri, stök blóm sem er eftirsótt í steinhæðir. Uppruni í A-Ölpum. Blendingur D. monspessulanus og D. seguieri (D. x arvernensis Rouy & Fouchaud) er upprunnin í S-Frakklandi og er ræktaður (sem ýmis yrki) í steinhæðum. Hann er þétt þýfður og laufin eru grágræn. Í flestum garðyrkjubókum er hann meðhöndlaður sem afbrigði af D. gratianopolitanus Vill.
     
Útbreiðsla  
     
Flipadrottning
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is