Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Campanula raineri
Ættkvísl   Campanula
     
Nafn   raineri
     
Höfundur   Perpenti.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Tindaklukka
     
Ætt   Campanulaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   Fölblár
     
Blómgunartími   Ágúst
     
Hæð   0.05-0.1m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lágvaxinn, þýfður, ± uppréttur, hærður fjölæringur, allt að 10 sm hár með skriðula jarðstöngla. Blómstönglar oftast greinóttir.
     
Lýsing   Stofnstæðu laufin öfugegglaga til spaðalaga með smáar, reglulegar tennur eða strjálar tennur, næstum stilklaus, grágræn. Stöngullauf aflöng-egglaga, bogtennt. Blóm oftast 1-3 á stuttum stilk, upprétt og endastæð. Bikarflipar breiðlensulaga til egglaga, tenntir, langyddir. Enginn aukabikar. Krónan allt að 4 sm, breiðtrektlaga, fölblá. Hýði opnast með götum efst.
     
Heimkynni   Sviss, Ítalía (SA Alpafjöll)
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, frjór
     
Sjúkdómar   engir
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1, 2, HS
     
Fjölgun   Skipting, sáning
     
Notkun/nytjar   Steinhæðir, kanta
     
Reynsla   Nokkurra ára reynsla komin af henni í görðum hérlendis. Þrífst vel og er blómviljug. Góð í steinhæðir.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is