Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Erythronium tuolumnense
Ættkvísl   Erythronium
     
Nafn   tuolumnense
     
Höfundur   Appleg.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gullskógarlilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær laukjurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Skærgulur.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   20-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Laufin slétt, græn.
     
Lýsing   Blómin stök, lítil, skær gul með grænum æðum, innri blómhlífin smáblaða. Fræflar gulir. Fræni heil.
     
Heimkynni   M Kalifornía.
     
Jarðvegur   Frjór moldarjarðvegur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Hliðarlaukar, sáning, laukar lagðir í ágúst á um 10-15 sm dýpt.
     
Notkun/nytjar   Í blómaengi, í þyrpingar, sem undirgróður.
     
Reynsla   Lítt reynd en ætti að spjara sig vel hérlendis, skýla fyrsta árið, visnar niður eftir blómgun. Hefur verið ræktuð í Reyjavík með góðum árangri (HS).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is