Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Euphorbia myrsinites
Ættkvísl   Euphorbia
     
Nafn   myrsinites
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ostamjólk
     
Ætt   Mjólkurjurtaætt (Euphorbiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Brennisteinsgulur.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   15-25 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær, bláleit jurt, allt að 20 sm há, sjaldan allt að 40 sm há eða hærri.
     
Lýsing   Stönglar kröftugir, útafliggjandi til uppsveigðir, allt að 25 sm langir eða meir, hárlaus, bláleitir, laufóttir. Lauf raðast eins og gormur upp eftir leggum, öfugegglaga til kringlótt, kjötkennd, blágrá, broddydd. Stórsveipir með 5-12 geisla, skærgræn, háblöð öfugegglaga eða kringlótt, broddydd, háblöð smásveipa hjartalaga til öfugegglaga-spaðalaga, brennisteinsgul, kirtlar hálfmánalaga, gulir, flipóttir í oddinn. Aldin allt að 7 mm, slétt, hárlaus, græn. Fræ allt að 4 mm, brún.
     
Heimkynni   S Evrópa, L Asía.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   í steinhæðir, í beð, í blómaengi.
     
Reynsla   Viðkvæm jurt en svolítið ræktuð sunnanlands.
     
Yrki og undirteg.   'Washfield' er með rauðleitri blómskipan.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is