Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Lilium dauricum
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn   dauricum
     
Höfundur   Ker-Gawl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skriðlilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti   Réttara: L.pensylvanicum Ker Gawl.
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Skærrauður-fagurrauður, doppur brúnrauðar.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   Allt að 75 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttir, laufóttir stönglar.
     
Lýsing   Stönglar eru með stöngulrætur, allt að 75 sm háir, gáróttir, grænir, með rauðbrúnar doppur, ullhærðir. Laukar 1,2-5×2 sm, skriðulir. Hreistur 1-0,6 sm , hvít, lensulaga. Lauf 5-15×0,5-0,3 sm, stakstæð, bandlaga til lensulaga, 3-5 tauga, jaðrar hærðir. Lauf í krönsum neðan við blómin. Blóm 1-6, upprétt, bollalaga, allt að 10 sm breið. Þau eru í sveip, blómleggir hærðir, allt að 9 sm langir, útstæðir. Blómhlífarblöð 5-10×1,5-3,5 sm, baksveigð, öfuglensulaga, skærrauð-fagurrauð, með brúnrauðar doppur, grunnur gulur, mjór. Frjó rautt. Aldin 5 sm.
     
Heimkynni   NA Asía.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur, fremur súr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Fræ, hliðarlaukar, laukhreistur.
     
Notkun/nytjar   Í trjá- og runnabeð, fjölæringabeð.
     
Reynsla   Harðgerð-meðalharðgerð, nokkuð lík flekkulilju (L. maculatum) og stundum talin afbrigði af henni t.d. í Japan (H.S.) Var sáð í Lystigarðinum 1993, dó 1999.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is