Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Linum usitatissimum
Ættkvísl   Linum
     
Nafn   usitatissimum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Spunalín
     
Ætt   Línætt (Linaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Einær jurt - ræktuð sem sumarblóm.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Blár.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   60-120 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Upprétt, einær jurt, allt að 120 sm.
     
Lýsing   Laufin bandlaga til lensulaga, allt að 3 mm breið, hvassydd. Blómin eru blá, allt að 1,25 sm í þvermál, í endastæðum, laufóttum hálfsveiplíkum skúf. Bikarblöð egglaga, hvassydd, þau innri með himnukenndan jaðar. Krónublöð dálítið bogtennt.
     
Heimkynni   Asía til forna, vex sem slæðingur í N Ameríku.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Nytjajurt. Ræktað stundum sem sumarblóm, en fremur sem nytjaplanta vegna trefja í stönglum sem notaðar eru í vefnað og úr fræjum má vinna línolíu.
     
Reynsla   Þokkalega harðgerð, að minnsta kosti norðanlands.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is