Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Mimulus cardinalis
Ættkvísl   Mimulus
     
Nafn   cardinalis
     
Höfundur   Douglas.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skarlatstrúður
     
Ætt   Grímublómaætt (Scrophulariaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Skarlatsrauð með gulu gini.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   40-120 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt. Stönglar 40-120 sm háir, uppréttir, greinóttir, hærðir, lítið eitt kirtilhærðir.
     
Lýsing   Lauf egglaga til aflöng-oddbaugótt, smá- og hvasstennt og bylgjutennt, kirtil-dúnhærð, efstu laufin greipfætt við grunninn, þau stærstu 7-11 sm, æðar 3-5, langsum. Blómleggir 5-8 sm, bikar 2,5-3 sm, með ferkantaða vængi, flipar næstum jafnstórir, hvassyddir, 3-5 mm. Krónan 4,5-5 sm, áberandi tvívara, efri vörin bogsveigð og uppsveigð, neðri vörin niðursveigð og baksveigð, fliparnir skarlatsrauðir, gin mjótt með gula slikju, með 2 hryggi gulhærða að framan, frjóhnappar randhærðir, ná fram úr blóminu. Fræni lítillega kögruð. Fræhýði 16-18 mm, klofnar gegnum oddinn á skálpinum.
     
Heimkynni   N Ameríka (Utah - Oregon).
     
Jarðvegur   Meðalrakur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting að vori, sáning, græðlingar að vori.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð, sem undirgróður.
     
Reynsla   Viðkvæm-meðalharðger, hefur verið ræktaður sem sumarblóm hérlendis en á Það til að lifa í nokkur ár.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is