Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Oenothera rosea
Ættkvísl   Oenothera
     
Nafn   rosea
     
Höfundur   L'Hérit. ex Ait.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Purpuraljós
     
Ætt   Eyrarrósarætt (Onagraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær eða einær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, skjól.
     
Blómlitur   Bleikur til rauðfjólublár.
     
Blómgunartími   Júní-ágúst.
     
Hæð   15-60 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Upprétt, fjölær, snarphærð planta, stöku sinnum einær, 15-60 sm. Lauf aflöng-egglaga til öfuglensulaga, grunnlauf 2-5 sm, heilrend til gróf fjaðurskipt, laufleggir 1-2 sm. Stöngullauf 1,5-3 sm næstum heilrend til fjaðurskipt, einkum neðst.
     
Lýsing   Blómskipunin ax, blómpípan 4-8 mm, krónublöð 4-10 x 3-4 mm, bleik til rauðfjólublá. Hýðið kylfulaga, mjókkar smám saman að grunni, gárótt eða með vængi.
     
Heimkynni   N & S Ameríka (Texas til Perú), hefur numið land í Evrópu.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, léttur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð með fjölærum tegundum, í steinhæðir.
     
Reynsla   Hefur verið af og til í ræktun í Lystigarðinum en er greinilega skammlíf og best að rækta sem einær væri. Er ekki í Lystigarðinum 2015.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is