Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
|
Ættkvísl |
|
Oxalis |
|
|
|
Nafn |
|
corniculata |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Hornsmæra |
|
|
|
Ætt |
|
Súrsmæruætt (Oxalidaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt en skammlíf. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Hálfskuggi-skuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Ljósgulur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júní - september. |
|
|
|
Hæð |
|
5-25 (-30) sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Skammlíf, fjölær jurt, skriðul og mjög greinótt, myndar breiður, með jarðlæga til uppsveigða, granna stöngla 10-30 sm langa sem vaxa upp frá stuttri, láréttri stólparót. Lauf fjölmörg á stönglinum, laufleggir uppréttir, 1-8 sm, dálítið hærðir, með samvaxin, ferköntuð axlablöð. Smálauf 3, 5-15 x 8-20 mm, öfughjartalaga, græn, oftast hárlaus ofan og hærð neðan. |
|
|
|
Lýsing |
|
Blómstönglar eru í lauföxlunum, 1-10 sm, með 2-6-blóma sveipi, blómin um 1 sm í þvermál, ljósgul, stundum með rautt gin. Bikarblöð ekki með þykkildi. Aldin sívöl, 12-15 mm löng, upprétt á niðurstæðum blómleggjum. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Alheims-illgresi með óþekktan uppruna en mikla útbreiðslu. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Fremur súr, meðalrakur, vel framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
5 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting að vori, sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í rifur í hellulögnum, í steinbeð. |
|
|
|
Reynsla |
|
Getur orðið hálfgerð plága í gróðurhúsum. Er ekki í Lystigarðinum 2015. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
O. corniculata L. v. atropurpurea Planch. Laufin koparrauð, öll plantan með purpuralitum blæ. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|