Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Ranunculus pyreneus
Ættkvísl   Ranunculus
     
Nafn   pyreneus
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hlíðasóley
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   10-15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Hárlaus, fjölær jurt, allt að 15 sm há.
     
Lýsing   Laufblöðin bandlaga-breiðlensulaga,, legglaus, dökkgræn. Stöngullauf einnig legglaus. Blóm 1-10 á stöngli, hvít, um 2 sm í þvermál. Bikarblöðin hárlaus, gráhvít, krónublððin öfugegglaga, stundum ófullkomin eða vantar alveg. Blómbotn dúnhærður. Fræhnotir tígullaga, útflattar, trjóna stutt, bein.
     
Heimkynni   Pyreneafjöll, Alpafjöll, Korsíka
     
Jarðvegur   Meðalrakur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir (neðan til), í kanta, í fjölær beð.
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is