Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Saxifraga aquatica
Ættkvísl   Saxifraga
     
Nafn   aquatica
     
Höfundur   Lapeyr.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Vætusteinbrjótur
     
Ætt   Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst
     
Hæð   0,4-0,6 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, myndar þéttar breiður allt að 2 m í þvermál.
     
Lýsing   Blaðka grunnlaufanna allt að 2,5 x 3,5 sm, +/- hálfkringlótt, skipt næstum að grunni í 3 aðalflipa sem hver um sig eru aftur skiptir í 15-27 egglaga til mjóþríhyrnda sepa sem oft skarast. Blómstönglar 25-60 sm, grófgerðir, greinóttir ofan miðju. Krónublöð 7-9 mm, mjóöfugegglaga, venjulega hvít.
     
Heimkynni   Pýreneafjöll.
     
Jarðvegur   Þarf rennandi neutralt eða súrt vatn, þrífst líklega best við hentugan læk.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, blönduð beð, breiður
     
Reynsla   Harðger og auðræktuð tegund.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is