Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Thalictrum lucidum
Ættkvísl   Thalictrum
     
Nafn   lucidum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ljósagras
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti   T. angustifolium mistúlkun
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Grængulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   70-100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Ljósagras
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 100 sm há, hárlaus. Lauf 2-3 fjöðruð. Smálauf aflöng til bandlaga, miklu lengri en þau eru breið, heil eða flipótt.
     
Lýsing   Blóm fjölmörg í uppréttum skúf með þéttum blómknippum. Bikarblöð 4, grængul, um 3 mm löng. Fræflar lengri en bikarblöðin, uppréttir, frjóþræðir þráðlaga. Hnetur 6-12, legglausar, gáróttar.
     
Heimkynni   Evrópa að tempraða hluta Asíu.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   = 1, 2
     
Fjölgun   Skipting, sáning, fræið er lengi að spíra.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, í blómaengi, í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Harðgerð planta. Í Lystigarðinum er til ein, gömul planta undir þessu nafni, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.   'Adiantifolium' með enn fínlegri blöð, eftirsótt yrki.
     
Útbreiðsla  
     
Ljósagras
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is