Sigfús Daðason - Vængjasláttur Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.
Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!
Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.
Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.
Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.
|
| Ættkvísl |
|
Acer |
| |
|
|
| Nafn |
|
negundo |
| |
|
|
| Höfundur |
|
L. |
| |
|
|
| Ssp./var |
|
|
| |
|
|
| Höfundur undirteg. |
|
|
| |
|
|
| Yrki form |
|
|
| |
|
|
| Höf. |
|
|
| |
|
|
| Íslenskt nafn |
|
Askhlynur |
| |
|
|
| Ætt |
|
Hlynsætt (Aceraceae). |
| |
|
|
| Samheiti |
|
|
| |
|
|
| Lífsform |
|
Sumargrænt tré/stór runni |
| |
|
|
| Kjörlendi |
|
Sól. |
| |
|
|
| Blómlitur |
|
Grængulur. |
| |
|
|
| Blómgunartími |
|
Snemmsumars. |
| |
|
|
| Hæð |
|
4-6 m (-20 m erlendis). |
| |
|
|
| Vaxtarhraði |
|
|
| |
|
|
|
|
|
| Vaxtarlag |
|
Tré allt að 25 m hátt í heimkynnum sínum, oft með fleiri en einn stofn, krónan breið, útstæðar greinar og hárlausar. Sérbýli. Börkur grár, sléttur. Greinar hárlausar, grænar eða gráar, stundum bláleitar. |
| |
|
|
| Lýsing |
|
Lauf allt að 22 sm, fjaðurskipt, smálauf 3-7, stundum 9 talsins, en oftast 5. neðsta parið og endasmáblað eru stundum með 3 flipa. Smálauf egglaga, gróftennt við oddinn, skærgræn á efra borði, ljósari á því neðra, ögn dúnhærð eða hárlaus. Blómskipunin hliðstæð, karlblómin í hnoðum í klasa með 15-50 blóm, kvenblómin eru lítil, í drúpandi klasa, með 1-11 blóm og stundum með 1 blaðpar. Blómin grængul, kvenblómin með löng, hvít fræni og ekki með vanþroska fræfla. Aldin allt að 4 sm, hnotir litlar, sporvala-hnöttóttar til nokkuð flatar, með æðar. Vængir mætast í hvössu horni. ε |
| |
|
|
| Heimkynni |
|
Mið- & N-Ameríka. |
| |
|
|
| Jarðvegur |
|
Meðalrakur frjór. |
| |
|
|
| Sjúkdómar |
|
|
| |
|
|
| Harka |
|
2 |
| |
|
|
| Heimildir |
|
1, 2 |
| |
|
|
| Fjölgun |
|
Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa hlotið 3 mánaða kuldameðferð. Fræ í tvívængjuðum hárlausum hnotum. |
| |
|
|
| Notkun |
|
Stakstæð tré, í þyrpingar, í beð. |
| |
|
|
| Nytjar |
|
REYNSLA: Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1988 og gróðursett í beð 2001. Kelur dálítið. ----
Til eru yrki af askhlyn með flikróttum blöðum, t. d. A. negundo 'Variegatum' og A. negundo 'Flamingo' |
| |
|
|
| Yrki og undirteg. |
|
Einnig má geta A. negundo L. var. texanum Pax., A. negundo var. violaceum Kirchn., Acer negundo ssp. mexicanum (DC) Wesm. en samkvæmt RHS eiga allar þessar undirtegundir að vera harðgerðar. |
| |
|
|
| Útbreiðsla |
|
|
| |
|
|
|
|